Ástrós Kristinsdóttir markaðsstjóri Fastus segir breytingar ómflýjanlegan hluta af vexti.
Ástrós Kristinsdóttir markaðsstjóri Fastus segir breytingar ómflýjanlegan hluta af vexti.

Breytingar eru óumflýjanlegur hluti af vexti og hjá Fastus erum við ekki aðeins reiðubúin að taka þátt í þeim – við fögnum þeim. Konur gegna lykilhlutverki í þessari vegferð, bæði í stefnumótun og framkvæmd, og með þeirra framsýni og krafti höfum við burði til að breyta. Við vitum að breytingar eru ekki aðeins forsenda þess að vera leiðandi heldur einnig lykillinn að því að fyrirbyggja stöðnun og tryggja stöðugan vöxt. Þrátt fyrir tækifærin sem breytingar fela í sér fylgja þeim mismiklar áskoranir. Í okkar tilfelli var það áskorunin að takast á við sameiningu, flutninga og endurmörkun samtímis,“ segir Ástrós.

„Sameiningin sameinaði fjölbreyttan hóp starfsfólks með ólíkan bakgrunn – sumir með djúpar rætur í félaginu og aðrir nýir í hópinn. Öll þurftum við þó að aðlagast breyttum aðstæðum þar sem við tóku nýjar áherslur og nýtt vinnuumhverfi. Að skapa samhljóm í

...