Á árinu 2024 höfum við einbeitt okkur að umfangsmiklum umbótum sem miða að því að efla starfsemi okkar og bæta þjónustu enn frekar. Þessar umbætur fela í sér fjárfestingar í nýrri tækni, endurskipulagningu ferla og styrkingu innra starfs. Þetta eru ekki einungis stefnumarkandi skref heldur nauðsynlegar breytingar til að mæta kröfum nútímans. Með tæknivæddum lausnum, auknum sveigjanleika og persónulegri þjónustu leggjum við traustan grunn að framtíðinni. Við stefnum að því að Fastus verði áfram fyrirmynd í viðskiptum og þjónustu þar sem nýsköpun og gæði eru í forgrunni,“ segir Ásta Rut.
„Við erum stolt af því að hafa hlotið viðurkenningar á borð við Framúrskarandi fyrirtæki, Fyrirmyndarfyrirtæki og Jafnvægisvog FKA, sem staðfesta fagmennsku okkar og skuldbindingu til jafnvægis og gæða,“ segir Ásta Rut Jónasdóttir, deildarstjóri vörustýringarsviðs Fastus.