Í FKA er höndlað með það sem sameinar konur og þar starfa deildir, ráð og verkefnadrifnar nefndir með sérstakt hlutverk en innan félagsins má einnig finna nokkra óformlega hópa þar sem konur tengjast á grundvelli sameiginlegra áhugamála (samanber…
Félag aflakvenna hjá Félagi kvenna í atvinnulífinu var stofnað síðasta sumar og farið var í veiðiferð í Ytri-Rangá.
Félag aflakvenna hjá Félagi kvenna í atvinnulífinu var stofnað síðasta sumar og farið var í veiðiferð í Ytri-Rangá.

Í FKA er höndlað með það sem sameinar konur og þar starfa deildir, ráð og verkefnadrifnar nefndir með sérstakt hlutverk en innan félagsins má einnig finna nokkra óformlega hópa þar sem konur tengjast á grundvelli sameiginlegra áhugamála (samanber gönguhóp) eða starfsvettvangs, góð viðbót svo fremi sem hún sé gegnsæ og fagnandi. „Mig langar að kynnast og tengjast konum í FKA í byggingariðnaði,“ sagði ein félagskona haustið 2021 og úr varð hópur FKA-kvenna í mannvirkjaiðnaði sem hefur heldur betur látið til sín taka. Nýjasta viðbótin af óformlegum hópum, utan skipurits, er Félag Aflakvenna – FKA sem stofnað var síðasta sumar. Farið var í veiðiferð í Ytri-Rangá og tókst ferðin einstaklega vel, ákveðið var að bóka holl næsta sumar.