Íslandsbanki hefur um langt skeið verið mikill jafnréttisbanki sem skýrist meðal annars af því að fyrrverandi bankastjóri var lengi vel eina konan sem stýrði banka hér á landi og um tíma eini kvenforstjórinn í Kauphöllinni. Við höfum lagt mikla áherslu á jafnréttismál, bæði inn á við og út á við, og höfum til að mynda haldið fjölmarga fundi um jafnréttismál í gegnum tíðina og var fundurinn okkar um Ljónin í veginum árið 2015 einn af þeim fyrstu þar sem yfir 700 konur mættu. Í kjölfarið fjölluðum við um konur og fjárfestingar, atvinnugreinar og kynin, hvernig Ísland geti verið forystuþjóð í jafnréttismálum og nú hafa vel yfir 2.000 manns sótt þessa fundi,“ segir Edda Hermannsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptasviðs Íslandsbanka.
„Við förum inn í nýtt ár fullar bjartsýni. Í lok síðasta árs úthlutaði frumkvöðlasjóður Íslandsbanka samtals 50 milljónum til
...