Guðlaugsvík Hræið er af búrhval og er um fjórtán metrar á lengd.
Guðlaugsvík Hræið er af búrhval og er um fjórtán metrar á lengd. — Ljósmynd/Höskuldur B. Erlingsson

Hval rak á land í Guðlaugsvík fyrir nokkrum dögum. Tilkynning barst lögreglunni á Norðurlandi vestra um hvalrekann í upphafi vikunnar.

Í færslu sem lögreglan birti á Facebook kemur fram að um sé að ræða hræ af búrhval sem sé um 14 metra langt. „Til samanburðar má áætla að þrjár Tesla Y-bifreiðar séu nokkurn veginn jafnlangar séu þær samsíða hvalnum, eða sjö Cleveland 3ja sæta sófar lagðir samsíða hvalnum,“ segir í færslu lögreglunnar.

Þá er jafnfram tekið fram að áður fyrr hafi hvalreki þótt mikil búbót. „Sagnir eru til af hvalreka sem bjargaði heilu sveitunum frá hungursneyð í erfiðum árum. Þaðan kemur líklega merking orðsins hvalreki á íslensku sem kærkomið happ eða óvæntur fengur.“

Aftur á móti skuli ósagt látið hvort sveitungar í Guðlaugsvík líti á hræið

...