AtvinnurekendaAuður er félag innan FKA-regnhlífarinnar sem er sérstaklega ætlað konum sem eiga og reka fyrirtæki,“ segir Jónína Bjartmarz formaður deildarinnar og leggur áherslu á að félagið skapi vettvang þar sem konur í atvinnurekstri geta vaxið, eflt tengslanet sitt og fengið stuðning við að takast á við áskoranir sem mæta þeim sem fyrirtækjaeigendum. „Markmið AtvinnurekendaAuðs er að standa vörð um hagsmuni félagskvenna, veita sérhæfðan stuðning og bjóða upp á fræðslufundi sem miða að þörfum og áhugasviði þeirra.“
Mikil fjölgun félagskvenna
Jónína tekur fram að skilyrði aðildar að AtvinnurekendaAuði sé að eiga og reka fyrirtæki, hvort heldur sem er einar eða með öðrum, hafa verið með rekstur eða hyggja á sjálfstæðan rekstur. „Það hefur verið einstaklega gefandi að vera í AtvinnurekendaAuði öll þessi ár og það sem hefur verið einna
...