Mathias Malzieu er franskur tónlistarmaður, rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður sem er einna þekktastur fyrir að vera forsprakki og söngvari sveitarinnar Dionysos. Hann hefur einnig vakið mikla athygli fyrir sögur sínar og kvikmyndir eins og til…
Mikið Mathias Malzieu er franskur tónlistarmaður, rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður svo fátt eitt sé nefnt.
Mikið Mathias Malzieu er franskur tónlistarmaður, rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður svo fátt eitt sé nefnt. — Morgunblaðið/Eggert

María Margrét Jóhannsdóttir

mariamargret@mbl.is

Mathias Malzieu er franskur tónlistarmaður, rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður sem er einna þekktastur fyrir að vera forsprakki og söngvari sveitarinnar Dionysos. Hann hefur einnig vakið mikla athygli fyrir sögur sínar og kvikmyndir eins og til dæmis teiknimyndina Jack et la mécanique du cœur, sem sýnd var í ár á Frönsku kvikmyndahátíðinni undir enska titlinum Jack and the Cuckoo-Clock Heart, en Malzieu var þar heiðursgestur. Malzieu er mikill Íslandsvinur og hefur m.a. unnið að tónsmíðum með Barða Jóhannssyni úr Bang Gang. Hann dvelur nú í Gröndalshúsi á vegum Alliance Francaise þar sem hann skrifar næstu bók og heldur viðburð í Mengi þann 1. febrúar kl. 20 en aðgangur er ókeypis.

Glímdi við alvarleg veikindi

...