Una Ásta Gunnarsdóttir opnar einkasýningu á morgun, fimmtudaginn 30. janúar, kl. 17-21 í Phenomenon Art Studios & Gallery. Segir í tilkynningu að þar verði til sýnis olíumálverk sem unnin hafi verið á síðasta áratug: „Ég tengi saman sýningu við þann áfanga að verða fertug og vil gjarnan sjónrænt líta til baka áður en blikið festist alveg á framtíðinni.“
Þá ber sýningin heitið fyrirgef mér námslánin mín og er tilvísun í fyrirlestur hjá Judith Butler „[…] og ku Butler vera að velta fyrir sér hugmyndinni um fyrirgefningu og hvernig best sé að aftengja huglægt peningaskuldir frá samfélagslegri sektarkennd, í samhengi við aukningu á skuldum námsmanna og húsnæðislánum síðustu ára. Þessi verk eru ótengd, frá handraðanum, og voru unnin fyrir mismunandi viðburði og verkefni en tengjast þó vissulega, þar sem málverkin voru gerð í persónulegu flæði innan ákveðins tímaramma í frekar nálægum núliðnum samtíma.“