Hjónin Erna og Hjalti með fjalllendið í Washington-ríki á bak við sig.
Hjónin Erna og Hjalti með fjalllendið í Washington-ríki á bak við sig.

Hjalti Þórarinsson er fæddur 29. janúar 1975 á Landspítalanum í Reykjavík. „Ég bjó með foreldrum mínum og ættmennum í Fossvogi fyrstu árin, en stoppaði síðan stutt í Seljahverfi áður en foreldrar mínir drógu mig til Danmerkur tveggja ára. Pabbi fór í framhaldsnám í verkfræði og mamma vann á sjúkrahúsi.

Árin í Danmörku voru viðburðalítil fyrir utan kynni af Bang & Olufsen og Lego sem settu mark á framtíðarnámsferil. Að lokinni dvöl í Danmörku flutti fjölskyldan í Kópavog þar sem ég lauk grunnskólanámi í Kársnes- og Þinghólsskóla.“

Hjalti var áhugasamur um tækni og tölvur frá unga aldri og eignaðist fyrstu tölvuna sína átta ára. Það var Oric-1 með 48 KB vinnsluminni og innbyggt Basic-forritunarmál. „Ég eignaðist góða vini sem deildu sama áhuga á tölvum og við seldum okkar fyrsta hugbúnað til Bókabúðar Braga tólf ára gamlir.

...