Til að tengjast öðru fólki þá þarftu að þekkja eigin tilfinningar. Í dag, í þeim einmanaleikafaraldri sem nú ríkir, þá þurfa leiðtogar meira en áður að hafa hæfni til að tengjast fólki,” segir Guðrún Snorradóttir, leiðtogamarkþjálfi og eigandi fyrirtækisins Human-Centered Leader.
„Ég er með yfir áratuga reynslu sjálf sem stjórnandi og ákvað á sínum tíma að venda kvæði mínu í kross og mennta mig í markþjálfun og jákvæðri sálfræði og í kjöfarið að stofna mitt eigið fyrirtæki. Það hefur blessunarlega frá upphafi verið nóg að gera hjá mér en ég hef fundið mig knúna til að stíga fram að undanförnu til að minna leiðtoga á hversu miklu máli þeir skipta í stóra samhenginu. Við sjáum út um allan heim áskoranir, „pólariseringar“ og óróleika, sem ég vil meina að sé að hluta til vegna þess að fólk vantar samfélag. Að tilheyra, vera séð og vera hluti af
...