Ég held að allar konur þurfi sinn ættbálk og þetta getur verið þinn ættbálkur. Sama hverju konur leita eftir þá getur þessi félagsskapur gefið þeim eins mikið og þær vilja taka úr honum. Ég er gott dæmi um það en ég gekk í FKA rétt áður en ég fór í fæðingarorlof. Í fæðingarorlofinu tók ég þátt í mentorverkefninu sem var ótrúlega gefandi og hafði mikil áhrif á mig. Í kjölfarið fór ég í stjórn FKA, stofnaði mitt eigið fyrirtæki og fékk meira að segja fyrsta viðskiptavininn minn í gegnum FKA. Hjá FKA hitti ég svo mikið af áhugaverðu fólki sem ég hefði ekki haft aðgang að annars staðar. Maður græðir svo mikið á þessu, ef maður er tilbúinn til þess,“ segir Guna Mežule en Guna er stofnandi fyrirtækisins Mezule ehf., starfar sem ljósmyndari í lausamennsku og er ein af tíu konum í stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu.
Blaðamaður settist niður með allri stjórninni utan einnar á
...