ÍFKA eru starfræktar þrjár deildir, sex nefndir, fimm landsbyggðardeildir og stjórn sem heldur úti mikilvægum hreyfiaflsverkefnum. Félagið telur rúmlega fjórtán hundruð félagskonur og tæplega eitt hundrað af þeim eru í stjórnum, nefndum, deildum og ráðum félagsins um land allt. Meginmarkmiðið er að stuðla að eflingu kvenna í atvinnulífinu, sýnileika þeirra og netagerð er kemur að tengslum innan og utan félags.
Konur eru allskonar og fjölmargar breytur sem koma þar að en á sama tíma og við erum ólíkar er raunveruleiki þarna úti sem sameinar konur og því beinum við athyglinni að því sem sameinar okkur en ekki að því sem sundrar. Að öllu þessu samanlögðu eiga konur að finna sinn stað innan félagsins til dæmis í nefndum sem standa fyrir viðburðum og verkefnum sem falla undir sérgreind hlutverk þeirra og mæta þörfum
...