Inga Sæland og fleiri kjörnir fulltrúar Flokks fólksins segja um lítinn formgalla að ræða að flokkurinn hafi ekki verið skráður á stjórnmálasamtakaskrá Skattsins. En hvað felst í þessum formgalla? Skráning flokks í stjórnmálasamtakaskrá Skattsins er …
Andrea Sigurðardóttir
andrea@mbl.is
Inga Sæland og fleiri kjörnir fulltrúar Flokks fólksins segja um lítinn formgalla að ræða að flokkurinn hafi ekki verið skráður á stjórnmálasamtakaskrá Skattsins. En hvað felst í þessum formgalla?
Skráning flokks í stjórnmálasamtakaskrá Skattsins er valkvæð, en hún er þó fortakslaust skilyrði vilji flokkur þiggja opinbera styrki. Til þess að öðlast skráningu á stjórnmálasamtakaskrá þarf tilgangur samtakanna að vera að bjóða fram í kosningum til Alþingis eða sveitarstjórnar. Þá þurfi samþykktir að vera í samræmi við lög og önnur tilskilin gögn að fylgja umsókn.
Á eyðublaði Skattsins Tilkynning um breytingu félagasamtaka í stjórnmálasamtök þarf að rita grunnupplýsingar um samtökin: nafn, kennitölu,
...