60 ára Valgerður er Kópavogsbúi en móðurættin er úr Vestur-Skaftafellssýslu og föðurættin af Vestfjörðum. Valgerður stýrir umboðsskrifstofunni Reykjavík Literary Agency en lætur þar af störfum í lok mánaðar eftir yfir þriggja áratuga starf í bókabransanum.


Fjölskylda Eiginmaður Valgerðar er Grímur Björnsson jarðeðlisfræðingur, f. 1960. Börn þeirra eru Gunnar, f. 1993, og Sóley, f. 1996. Barnabörnin eru orðin þrjú. Foreldrar Valgerðar voru hjónin Ásdís Óskarsdóttir, f. 1933, d. 2016, hjúkrunarfræðingur og Benedikt Gunnarsson listmálari, f. 1929, d. 2018.