Konur fjárfestum er verkefni sem við fórum af stað með á síðasta ári. Við ætlum að halda upp á eins árs afmæli verkefnisins í febrúar á þessu ári en verkefnið snýst um að efla fjármálalæsi kvenna og fá þær til að taka meiri þátt á fjármálamörkuðum,“ segir Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarbankastjóri og framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka. Hún bendir á þá staðreynd að þó að Ísland hafi lengi verið í fararbroddi þegar kemur að jafnréttismálum, þá sé jafnrétti ekki til staðar þegar kemur að fjárfestingum. „Við höfum verið fremst á meðal þjóða á heimsvísu undanfarin fimmtán ár en þegar við skoðum tölurnar á bak við fjárfestingar, þátttöku kvenna á verðbréfamarkaði og hvaða fyrirtækjum konur stýra hér á landi þá endurspegla þær tölur ekki þann árangur sem við höfum náð í að jafna hlut kynjanna á öðrum sviðum. Með Konur fjárfestum viljum við leggja okkar af mörkum til að koma íslenskum konum í fremstu röð,“ segir
...