Það sem mér finnst svo einkennandi fyrir FKA-hópinn er hversu orkumikill og valdeflandi hann er.
Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Gæludýr.is, stofnaði fyrirtækið sitt árið 2009. Hún segir mikilvægt að tala um fyrirtækin sem ganga vel í landinu.
Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Gæludýr.is, stofnaði fyrirtækið sitt árið 2009. Hún segir mikilvægt að tala um fyrirtækin sem ganga vel í landinu. — Morgunblaðið/Karítas

Gæludýraverslunin Gæludýr.is er sú stærsta sinnar tegundar á Íslandi. „Við erum búin að vera með fasta viðskiptavini frá árinu 2009 þegar við opnuðum heimasíðuna okkar og fyrstu verslunina á Korputorgi árið 2010. Síðan þá höfum við vaxið jafnt og þétt og nú erum við með fimm verslanir, heimasíðuna Gæludýr.is og erum að opna sjöttu verslunina okkar á Reykjanesi í sumar. Eins erum við að standsetja 2.600 fermetra vöruhús fyrir Petmark-heildsöluna okkar,“ segir Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Gæludýr.is og Home&You. „Ég stofnaði Gæludýr.is ásamt eiginmanni mínum, Eiríki Ásmundssyni. Við höfum skipt með okkur verkum en hann sér nú alfarið um heildverslunina Petmark ehf. sem við stofnuðum 2015. Það var árið 2022 sem við svo festum kaup á versluninni Home&You. Fyrirtækið hefur stækkað jafnt og þétt og það sama má segja um fjölskylduna en saman eigum við fimm börn, þrjú barnabörn og fimm hunda,“

...