Herdísi Þórisdóttur, deildarstjóra heilbrigðisdeildar Fastus, er umhugað um öryggi.
Herdísi Þórisdóttur, deildarstjóra heilbrigðisdeildar Fastus, er umhugað um öryggi. — Morgunblaðið/Karítas

Fastus heilsa vinnur að því að styðja og styrkja heilbrigðisstarfsemi á Íslandi með vörum og þjónustu sem hafa bein áhrif á gæði og öryggi þjónustunnar. Hjá okkur starfa hátt í þrjátíu stoltir sérfræðingar með fjölbreyttan bakgrunn í heilbrigðisvísindum sem sameinar þekkingu okkar á heilbrigðisvörum. Réttur búnaður, ráðgjöf og uppsetning í heilbrigðiskerfinu er mikilvæg fyrir öryggi, skilvirkni og gæði heilbrigðisþjónustu. Helstu viðskiptavinir okkar eru sjúkrahús, heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili, tannlæknastofur, sjúkraþjálfarar, rannsóknarstofur og einkastofur lækna,“ segir Herdís.

„Við erum stöðugt á tánum þegar kemur að nýjungum í heimi lækninga- og hjálpartækja. Sérfræðingar okkar sækja fræðslu og vottuð námskeið til að tryggja hámarkskunnáttu á þeim tækjum og búnaði sem við seljum og þjónustum. Styrkur Fastus heilsu liggur í samvinnu við heilbrigðisstofnanir

...