Silja Mist Sigurkarlsdóttir og Björg Ársælsdóttir gegna báðar lykilstöðum hjá N1. Silja hefur verið forstöðumaður markaðs- og þjónustusviðs félagsins frá 2023, en þangað flutti hún með sér víðtæka reynslu annars staðar að úr atvinnulífinu úr fyrri stjórnunar- og stjórnarstörfum. Björg hóf störf 2015 sem sérfræðingur á fræðslusviði og er í dag forstöðumaður mannauðs og menningar en hjá félaginu starfa um 650 manns vítt og breitt um land.
Vottað jafnlaunakerfi
Björg segir starfsemi N1 í stöðugri þróun í takt við áherslur og gildi samfélagsins á hverjum tíma. Það eigi meðal annars við um aukna áherslu á jafnréttis- og launamál til að jafna sem best laun og hlutföll kynja í starfsliðinu. „Við greiðum sömu laun fyrir jafn verðmæt störf á grunni vottaðs jafnlaunakerfis sem styður vel við stefnu félagsins. N1 hefur árlega frá 2015 hlotið jafnlaunavottun og var
...