Agnes Helga María Ferro fæddist 15. október 1988 í Ortona á Ítalíu. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 10. janúar 2025.

Foreldrar hennar eru Aurelio Ferro, f. 18. mars 1961 í San Severo í Puglia á Ítalíu, og Jóhanna Marín Jónsdóttir, f. 11. júlí 1965 í Reykjavík, alin upp í Hafnarfirði. Þau skildu. Systkini Agnesar eru Arianna, f. 10. nóvember 1992 í Pescara á Ítalíu, dóttir hennar er Paula Marín, f. 30. október 2012, Jón Már, f. 10. október 1995 í Reykjavík, sambýliskona hans er Birta Kristrún, f. 24. mars 1998, dóttir þeirra er Stella Marín, f. 7. maí 2023, og Bahía Aurelie samfeðra, f. 30. apríl 2002 í San Diego, Bandaríkjunum, sambýlismaður hennar er Sólmundur, f. 25. ágúst 1993, dóttir þeirra, óskírð, f. 10. október 2024. Móðir hennar er Anna Patricia Brizuela-Castaneda, f. 16. apríl 1959, seinni kona Aurelios, sem tók virkan þátt í uppeldi og lífi Agnesar frá 10 ára aldri. Hún á

...