Stjórn LeiðtogaAuða: Svanhildur Jónsdóttir, deildarstjóri fjárfestinga rafveitu hjá Veitum – formaður, Elfa Björg Aradóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Borealis Data Center – gjaldkeri og í vorferðanefnd, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarmaður – viðburðanefnd, Elín Gränz, VP Human Resources, Meat & Prepared Foods hjá Marel – inntaka nýrra félaga og Ásdís Arna Gottskálksdóttir, framkvæmdastjóri Aurbjargar – ritari. Á myndina vantar Ásu Karín Hólm, eiganda og stjórnunarráðgjafa Stratagem – vorferðarnefnd.

Rætur LeiðtogaAuðar liggja 25 ár aftur í tímann þegar hópur kvenna fór í stjórnendaþjálfun á Mývatni í tengslum við verkefnið „AUÐUR í krafti kvenna“ sem stóð yfir á árunum 2000-2003. Þær konur tóku með sér þaðan dýrmætan lærdóm sem þær nýttu til að hreyfa við hlutunum í atvinnulífinu. Frá þeim tíma hefur hópurinn stækkað og nýjar konur bæst við, með það að markmiði að efla stöðu kvenna í forystuhlutverkum,“ segir Svanhildur Jónsdóttir formaður LeiðtogaAuðar en það er deild innan FKA sem er sérstaklega ætluð konum með yfirgripsmikla stjórnunarreynslu í einkageiranum og opinbera geiranum. Félagskonur í LeiðtogaAuði tilheyra forystusveit íslensks atvinnulífs, þar sem þær gegna eða hafa gegnt ábyrgðarstöðum og vilja vera öðrum konum hvatning, fyrirmynd og stuðningur í eflingu íslensks atvinnulífs.

Tengslanet og orðspor

Aðspurð hvernig það hafi

...