Það getur verið margslungið að ætla sér að gera allt sjálfur því til þess þarf maður að kunna til verka á sviði ljósmyndunar, grafískrar hönnunar, textagerðar, kvikmyndagerðar og fleira.
Auður Elísabet, Elín Arnar og Inga Margrét, eigendur Birtu Media.
Auður Elísabet, Elín Arnar og Inga Margrét, eigendur Birtu Media. — Morgunblaðið/Karítas

Heimur vefmiðla kenndi mér ýmislegt um töframátt samfélagsmiðla, leitarvélabestun og algoriþma. Í dag er ég því búin að endurmennta mig sem stafrænn markaðssérfræðingur og nýti fyrri reynslu við framleiðslu á grípandi efni fyrir samfélagsmiðla og veraldarvefinn ásamt meðeigendum mínum, Auði Elísabetu Jóhannsdóttur og Ingu Margréti Jónsdóttur, í Birtu Media,“ segir Elín Arnar, rit- og framleiðslustjóri Birtu Media. Elín starfaði um árabil við margvísleg verkefni í kvikmyndagerð áður en hún sneri sér að fjölmiðlun þar sem hún ritstýrði bæði prent- og vefmiðlum.

Birta Media er fyrirtæki sem býður litlum og meðalstórum fyrirtækjum upp á áskrift að markaðsdeild. „Við erum í raun framlenging af þeim fyrirtækjum sem eru í áskrift hjá okkur og við vinnum mjög náið með viðskiptavinum okkar. Sum vilja mikil samskipti en öðrum hentar vel að við sjáum bara um ákveðna hluti þannig að þau

...