Ringulreið ríkir meðal fjárfesta í Bandaríkjunum eftir að kínverska gervigreindarfyrirtækið DeepSeek stökk fram á sjónarsviðið með búnað sem er talinn betri en allur sá sem bandarísku fyrirtækin hafa verið að þróa
Drekinn í hátíðarhöldum í tilefni nýja ársins í Kína, sem er í dag 29. janúar.
Drekinn í hátíðarhöldum í tilefni nýja ársins í Kína, sem er í dag 29. janúar. — AFP

Matthías Johannessen

mj@mbl.is

Ringulreið ríkir meðal fjárfesta í Bandaríkjunum eftir að kínverska gervigreindarfyrirtækið DeepSeek stökk fram á sjónarsviðið með búnað sem er talinn betri en allur sá sem bandarísku fyrirtækin hafa verið að þróa. Fyrirtæki eins og t.d. Microsoft, X, Google og Nvidia. Félögin lækkuðu hressilega í Bandaríkjunum við fréttirnar og eftirskjálftar eru víðar. Fjárfestar óttast að Kína geti með þessu gjörbreytt landslagi gervigreindar þar sem bandarísk fyrirtæki hafa verið leiðandi. Það myndi setja fjárfestingar upp á milljarða dala í uppnám.

Athygli vekur að DeepSeek er ársgamalt fyrirtæki sem reyndar segist hafa þróað búnað sinn á einungis tveimur mánuðum en birtist nú með yfirburða tæknibúnað. Fyrirtækið hefur sagt að það hafi einungis fjárfest fyrir tæpar 6 milljónir dala í

...