Magnea Gná Jóhannsdóttir
Að halda landinu í byggð og tryggja atvinnu um allt land kallar ekki einungis á innviðauppbyggingu heldur kallar það líka á að samgönguinnviðum sé haldið við og rekstraröryggi ekki raskað. Hér vísa ég auðvitað til umræðunnar um Reykjavíkurflugvöll sem hefur þjónað Íslendingum í áratugi – bæði sem samgöngumiðstöð og lendingarstaður sjúkraflugs enda staðsettur í návígi við Landspítalann. Í dreifbýlu landi skiptir tryggur rekstur flugvalla máli fyrir hraðar og greiðar samgöngur á milli landshluta, sér í lagi til höfuðborgarinnar þar sem mikil þjónusta við landsmenn alla hefur byggst upp.
Sitt sýnist hverjum um staðsetningu Reykjavíkurflugvallar og deilt hefur verið um staðsetningu hans frá því áður en ég fæddist. Staðreyndin er þó sú að árið 2019 skrifuðu ríki og borg undir samkomulag um rekstraröryggi flugvallarins. Í
...