Það er svo persónulegt að velja sér úr og það er stöðutákn að vera með fallegt úr, því gleður það okkur mikið að sjá að konur eru nú í auknum mæli að fjárfesta í fallegum úrum.
Guðbjörg Ásbjörnsdóttir verslunarstjóri Michelsen og Þórhildur Garðarsdóttir, fjármála- og rekstrarstjóri Michelsen, segja mikla sjálfsvirðingu fólgna í því að eiga fallegt, vandað úr.
Guðbjörg Ásbjörnsdóttir verslunarstjóri Michelsen og Þórhildur Garðarsdóttir, fjármála- og rekstrarstjóri Michelsen, segja mikla sjálfsvirðingu fólgna í því að eiga fallegt, vandað úr. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Það er alltaf gaman að vera í forystuliðinu,“ segir Guðbjörg Ásbjörnsdóttir, verslunarstjóri Michelsen 1909 á Hafnartorgi. „Við munum halda upp á 116 ára afmæli Michelsen í sumar svo maður stendur á sterkum öxlum, ef svo má segja, þar sem fjórar kynslóðir Michelsen-ættarinnar hafa léð rekstrinum krafta sína,“ segir hún.

„Ég er stolt af þessari sögu – og að fá að taka þátt í að búa til úramenningu á Íslandi og tel ég blað brotið í sögunni þegar við opnuðum nýju Michelsen-búðina á Hafnartorgi. Þá opnaðist nýr heimur þar sem úrsmiðir eru sýnilegir í versluninni á bak við gler og þú færð þessa tilfinningu sem þú upplifir erlendis þegar þú gengur inn í hágæðaverslanir. Úrvalið á úrum er glæsilegt, við leggjum mikið upp úr að bjóða faglega og persónulega þjónustu og gott andrúmsloft í fallegu umhverfi. Þú getur sest niður og skoðað falleg Rolex-úr sem dæmi en við

...