Hanna Katrín Friðriksson
Hanna Katrín Friðriksson

Í stjórnarmyndunarviðræðum undir lok síðasta árs lögðu oddvitar nýrrar ríkisstjórnar áherslu á að byggja upp öflugt ráðuneyti sem styður grunnatvinnuvegi þjóðarinnar. Niðurstaðan var stofnun nýs atvinnuvegaráðuneytis, sem mér var falið það mikilvæga hlutverk að byggja upp.

Ráðuneytið er byggt á grunni matvælaráðuneytisins sem heldur á málefnum fiskveiða, landbúnaðar, matvæla (þ.m.t. fiskeldis), matvælaöryggis og dýravelferðar. Nú bætast við málefni ferðaþjónustu, iðnaðar og viðskipta- og neytendamála sem styrkja grunn þess enn frekar.

Árið 2023 fluttu Íslendingar út vörur og þjónustu fyrir alls 1.800 milljarða króna. Ferðaþjónustan stóð að baki þriðjungi þessara verðmæta eða 600 milljörðum. Við fluttum út sjávarfang fyrir 350 milljarða og iðnvörur fyrir 500 milljarða, þar af var útflutningur áls 320 milljarðar. Þá nam útflutningur fiskeldisafurða 46 milljörðum

...

Höfundur: Hanna Katrín Friðriksson