Mikið hefur snjóað á Vestfjörðum á undanförnum dögum og nokkur snjóflóð fallið, þó fjarri byggð. Veðurstofa Íslands hefur aukið eftirlit vegna snjóflóðahættu. Nokkur flóð féllu á Kleifaheiði á mánudagskvöld og eitt flóð féll yfir veg í Súgandafirði. Þá var tilkynnt um lítið flóð sem náði inn á veg um Súðavíkurhlíð. Snjóþungt er í Ísafjarðarbæ og þá er gott að eiga góðan snjóblásara til að létta sér verkið, og góðan galla.