Félag kvenna í atvinnulífinu hefur verið leiðandi hreyfiafl í rúman aldarfjórðung og það ætlum við að vera áfram. Það er mikilvægt að konur njóti sannmælis og að samfélagið njóti sérfræðiþekkingar og reynslu allra kynja,“ segir Andrea…
Eliza Reid og FKA-viðurkenningarhafar árið 2024; Tanya Zharov, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir og Inga Tinna Sigurðardóttir sem og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu.
Eliza Reid og FKA-viðurkenningarhafar árið 2024; Tanya Zharov, Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir og Inga Tinna Sigurðardóttir sem og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir og Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu. — Ljósmynd/Silla Páls

Félag kvenna í atvinnulífinu hefur verið leiðandi hreyfiafl í rúman aldarfjórðung og það ætlum við að vera áfram. Það er mikilvægt að konur njóti sannmælis og að samfélagið njóti sérfræðiþekkingar og reynslu allra kynja,“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA full tilhlökkunar fyrir öflugu Kvennaári sem nú er hafið. „Það er mjög góð tilbreyting að kvenleg gildi og húmor séu að trenda núna,“ segir Andrea glöð í bragði við undirbúning á Viðurkenningarhátíð FKA. „Við þurfum að þekkja sögur af konum til að segja þær og láta þær vita að þær eiga erindi. Við þurfum að þekkja konur til að versla við þær, mæla með þeim, kjósa þær og þannig má lengi telja. Kennslubókasagnfræðin er eins og hún er og ég hef svakalega mikla ánægju af því að skrifa viðurkenningarhafa, konur, inn í söguna. Hátíð sem þessi er mikilvæg einmitt vegna þess og mikilvægt að komandi kynslóðir hafi fyrirmyndir, sem við klöppum upp ár hvert, til

...