Fyrsta stjórn FKA kom saman í lok árs 2024 og átti notalega stund með núverandi stjórn FKA og framkvæmdastjóra félagsins. „Ég var búin að hlakka til að sjá þetta gerast í tvö ár og svakalega ánægjulegt að allar komust til að ljúka 25 ára…
Geir Ólafsson tók mynd af fyrstu stjórn FKA sem birtist í Frjálsri verslun árið 1999.
Geir Ólafsson tók mynd af fyrstu stjórn FKA sem birtist í Frjálsri verslun árið 1999.

Fyrsta stjórn FKA kom saman í lok árs 2024 og átti notalega stund með núverandi stjórn FKA og framkvæmdastjóra félagsins. „Ég var búin að hlakka til að sjá þetta gerast í tvö ár og svakalega ánægjulegt að allar komust til að ljúka 25 ára afmælisári FKA saman,“ segir Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri FKA. Opinn faðmur og hlátrasköll langt út á götu þegar hópurinn leit um öxl og farið var yfir það sem fyrsta stjórn félagsins áorkaði með viljann og gleðina að vopni. Kostulegar sögur af sigrum og breyttu samfélagi voru sagðar á færibandi og þær má lesa nánar um á mbl.is. Í lok fundar var stjórnarmyndin frá árinu 1999 endurgerð og hana má sjá á forsíðu þessa blaðs en myndina tók Silla Páls í Vínstúkunni Tíu sopum á Laugavegi 27 í Reykjavík.

Takk fyrir að stofna FKA sem enn á erindi!