Ert þú ný í FKA? Varstu loksins að skrá þig? Kannski enn að fóta þig … eða mögulega vilt taka (aftur) virkan þátt í starfi félagsins? Tvisvar á ári heldur Fræðslunefnd nýliðakynningar og næst verðum við í heilsueflandi fræðslufyrirtæki, þann 20. febrúar, þegar Guðbjörg Björnsdóttir og Ingibjörg Valgeirsdóttir, eigendur Saga Story house, taka fagnandi á móti okkur. Við hvetjum konur til að kynna sér starfsemi FKA, skrá sig og kynnast ávinningi sem felst í að vera í félaginu og vaxa.