Við viljum vinna með góðu fólki sem er annt um Ísland og að saga landsins okkar lifi um ókomna tíð. Við erum ekki með neinar fyrirfram gefnar hugmyndir um hvaðan fjármagnið í fyrirtækið eigi að koma en við erum í fjármögnunarferli núna. Guyde-appið eflir sjálfbærni í ferðamennsku og markmiðið er jafnframt að skemmta notandanum, ekki síður en fræða. Þú getur ekki aðeins tekið Guyde með þér hvert á land sem er heldur líka út um allan heim og það talar öll tungumál. Þetta er svona eins og að vera á ferðalagi með afa í framsætinu, sagnfræðingi, náttúrufræðingi og hlaðvarpinu sem þú getur ekki hætt að hlusta á. Guyde er í raun hugsað sem ferðafélagi sem þekkir þig og þínar þarfir. Ég veit að við sem erum alin upp við góða leiðsögn um landið eigum eftir að elska forritið fyrir börnin okkar,“ segir Sara Björk Hauksdóttir, myndlistarkona og frumkvöðull.