Nú er vika í næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans, þá fyrstu frá 20. nóvember og þar með þá fyrstu í tíð þessarar ríkisstjórnar. Vextir voru í nóvember lækkaðir um 50 punkta og allar forsendur ættu að vera til áframhaldandi lækkunar, hafi Seðlabankinn áfram trú á að ríkisfjármálin séu ekki að fara úr böndum.
Fleira skiptir þó máli, meðal annars að þeir samningar sem eftir á að gera á vinnumarkaði verði innan þeirra marka sem lagt hefur verið upp með. Landsbankinn víkur að þessu í nýrri umfjöllun um efnahagsmál og segir: „Þótt kaupmáttur hafi lítið aukist á allra síðustu árum stuðlar aukinn stöðugleiki á vinnumarkaði að auknum verðstöðugleika sem ætti að óbreyttu að geta aukið kaupmátt til lengri tíma. Enn ríkir þó óvissa í tengslum við kjarabaráttu kennara og ekki útséð um frekari verkföll nú um næstu mánaðamót. Mikið er í húfi að samningar náist sem fyrst og að þeir raski ekki þeirri
...