Mikil hækkun á kostnaði við kaup á rafmagni til garðyrkjustöðva á skömmum tíma, í sumum tilvikum um meira en 40%, íþyngir nú rekstri þeirra og kallað er eftir viðbrögðum stjórnvalda. „Rafmagnsreikningurinn hefur rokið upp á síðustu mánuðum og allar forsendur í okkar starfsemi hafa gjörbreyst
Bændur Oddrún Ýr og Þorleifur Þorri í gróðurhúsinu. Gjörbreyttar forsendur, segja þau um rekstur sinn.
Bændur Oddrún Ýr og Þorleifur Þorri í gróðurhúsinu. Gjörbreyttar forsendur, segja þau um rekstur sinn.

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Mikil hækkun á kostnaði við kaup á rafmagni til garðyrkjustöðva á skömmum tíma, í sumum tilvikum um meira en 40%, íþyngir nú rekstri þeirra og kallað er eftir viðbrögðum stjórnvalda. „Rafmagnsreikningurinn hefur rokið upp á síðustu mánuðum og allar forsendur í okkar starfsemi hafa gjörbreyst. Eðlilega leitar aukinn kostnaður fljótt út í verðlagið og staða mikilvægrar matvælaframleiðslu veikist,“ segir Oddrún Ýr Sigurðardóttir, garðyrkjubóndi í Hrunamannahreppi. Hún reifaði stöðuna í bréfi sem sent var forsætis- og orkuráðherrum fyrir helgi, auk þess sem það var birt á félagsmiðlum.

Oddrún Ýr og Þorleifur Þorri Ingvarsson keyptu í júní á síðasta ári garðyrkjubýlið Reykás í Hrunamannahreppi, skammt frá Flúðum. Í Reykási eru alls um 5.000 fermetrar undir gleri

...