Söng- og leikkonan Salka Sól mætti nýlega í Skemmtilegri leiðina heim í litríkri peysu sem virtist nýdottin af prjónunum. En Salka er ekki aðeins á fullu við prjónið, því hún gaf nýverið út lagið Tímaglas sem hún pródúseraði ásamt Guðmundi Óskari Guðmundssyni
Söng- og leikkonan Salka Sól mætti nýlega í Skemmtilegri leiðina heim í litríkri peysu sem virtist nýdottin af prjónunum. En Salka er ekki aðeins á fullu við prjónið, því hún gaf nýverið út lagið Tímaglas sem hún pródúseraði ásamt Guðmundi Óskari Guðmundssyni. „Mér fannst ég vera með algjört gull í höndunum,“ segir Salka, sem samdi lagið ásamt Snorra Helgasyni og textann með Védísi Evu Guðmundsdóttur. Textinn varð til út frá línu sem Salka fékk snemma morguns: „Þegar steinar verða að sandi finna þeir ennþá tilgang.“ Viðtalið er að finna á K100.is.