” Það er óhætt að fullyrða að áminningar eru ekki mikið notaðar í opinbera geiranum og að margir stjórnendur eru hikandi við að beita þeim

Vinnumarkaður

Kristín Þóra Harðardóttir og Sigurður Ólafsson

Ráðgjafar hjá Gott & gilt

Flest starfsfólk vill standa sig vel í vinnu og vera á góðum vinnustað. Það er engum til góðs að stjórnandi horfi í gegnum fingur sér og grípi ekki til aðgerða þegar kemur að brotum á starfsskyldum eða óæskilegri hegðun á vinnustað. Oftast nægir að leiðbeina starfsfólki en dugi það ekki er betra að veita áminningu fyrr en síðar og freista þess að leiðrétta kúrsinn svo komast megi hjá afdrifaríkari aðgerðum.

Á almenna vinnumarkaðnum er gagnkvæmur uppsagnarréttur meginreglan sem þýðir að báðir aðilar ráðningarsamnings geta sagt honum upp með samningsbundnum fyrirvara án þess að gefa upp sérstakar ástæður fyrir uppsögninni. Ákveðnir hópar njóta þó verndar jafnt

...