Dr. Ásta Dís Óladóttir, Helga Björg Steinþórsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir varaformaður FKA, Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir á vel sóttum viðburði í Kauphöllinni í tilefni af alþjóðadegi kvenna 8. mars.

Við höfum fylgst með konum fá kúlu á hausinn við að reyna að komast í gegnum glerþakið í efsta stjórnunarlagi atvinnulífsins hér á landi og gagnrýnd fyrirliggjandi þekking í málaflokknum segir að langt sé í land í jafnréttismálum. Góðu fréttirnar eru að víða er verið að stokka spilin upp á nýtt og áhugavert að sjá kvenleg gildi vera að trenda og meira að segja húmor líka.

Við megum nefnilega ekki gleyma að hafa gaman og fagna því sem vel er gert. Félag kvenna í atvinnulífinu og Nasdaq Iceland/Kauphöll, UN Global Compact og UN Women hafa tekið þátt í sameiginlegum viðburði síðustu ár sem fer fram á heimsvísu meðal kauphalla þar sem kauphallarbjöllunni er hringt til að styðja við baráttu um jafnrétti kynjanna í tilefni af alþjóðadegi kvenna þann 8. mars.

Það komum við til með að gera, hringja inn jafnréttið og minna á

...