Eitt af verkefnum Kamils Zabielskis, forstöðumanns sjálfbærra fjárfestinga hjá norska eignastýringarfyrirtækinu Storebrand, er að stýra útilokunum (e. exclusions) svokölluðum, þ.e. hvaða fyrirtæki nauðsynlegt er að útiloka frá fjárfestingum vegna ósjálfbærra viðskiptahátta þeirra.
Zabielski verður lykilframsögumaður á Janúarráðstefnu Festu í Silfurbergi í Hörpu nk. föstudag.
Ráðstefnan ber yfirskriftina „Straumar sjálfbærni“. Sjónum verður þar beint að sjálfbærniáhættum í virðiskeðju fyrirtækja. Um er að ræða stærstu sjálfbærniráðstefnu á Íslandi en hún hefur verið haldin árlega frá árinu 2017.
„Sumum fyrirtækjum fjárfestum við ekki í. Við erum mjög skýr hvað það varðar. Þar má nefna fyrirtæki sem tengjast mannréttindabrotum, neikvæðum áhrifum á umhverfið eða spillingu en einnig
...