Hefðbundna jafnréttið er stór partur af þessu en kyn á einfaldlega ekki að skipta neinu máli þegar við erum í vinnunni.
Samfögnuður Nova-teymisins vegna Ánægjuvogarinnar sem veitt var nýverið.
Samfögnuður Nova-teymisins vegna Ánægjuvogarinnar sem veitt var nýverið.

Nova er mögulega hressasta fyrirtæki landsins. Við þekkjum flest skemmtistaðinn, diskókúluna og dansgólfið sem einkenna fyrirtækið. Innri menning hefur frá fyrstu tíð verið undirstöðuatriði í rekstri Nova og starfsánægja mælist stöðugt mjög há hjá fyrirtækinu,“ segir Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova. „Nova-menningin er undirstaðan að árangrinum okkar en fyrirtækið varð nýverið efst í Íslensku ánægjuvoginni í sextánda skiptið í röð og hækkaði milli ára, sem hlýtur að teljast eftirtektarverður árangur.“

Það þekkja fá Nova jafn vel og Margrét enda hefur hún starfað þar frá stofnun og stýrt „skemmtistaðnum“ frá árinu 2018. Hún segir að gleðin sé einfaldlega lykillinn að árangrinum. „Það skiptir öllu máli að halda gleðinni en það er ekki eitthvað sem þú þvingar fram eða setur sem skilyrði. Gleðin verður til þegar við vinnum markvisst að

...