Ég er ótrúlega heppin að starfa hjá fyrirtæki þar sem konum er treyst fyrir leiðtogastörfum.
Sigrún Arna Sigurðardóttir, forstöðukona vöru- og tæknisviðs Tixly, leggur áherslu á að skapa umhverfi þar sem fjölbreytt sjónarmið eru ekki aðeins velkomin heldur einnig metin.
Sigrún Arna Sigurðardóttir, forstöðukona vöru- og tæknisviðs Tixly, leggur áherslu á að skapa umhverfi þar sem fjölbreytt sjónarmið eru ekki aðeins velkomin heldur einnig metin. — Morgunblaðið/Hákon

Ég er svo heppin að hafa verið umvafin sterkum kvenfyrirmyndum í gegnum tíðina og lít ég upp til allra minna nánustu kvenna, bæði í fjölskyldu og vinkvenna ásamt þeim hæfileikaríku konum sem ég hef fengið tækifæri til að vinna með í gegnum tíðina,“ segir Sigrún Arna Sigurðardóttir, forstöðukona vöru- og tæknisviðs Tixly, sem utan vinnunnar er einnig CrossFit-unnandi, hlaupari, foreldri og maki. „Ég geri mitt besta í að ná jafnvægi í leiðtogahlutverkinu, fjölskyldulífinu og áhugamálum.“

Hún segir konur í tæknigeiranum í minnihluta en er afar stolt af sínu fyrirtæki sem valdeflir konur. „Tixly er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem á og rekur Tix Miðasölu en utan Íslands sér fyrirtækið virtum menningar- og leikhúsum fyrir miðasölukerfi. Sem dæmi um viðskiptavini má nefna Hörpu, norsku óperuna, Het Concertgebouw í Hollandi ásamt Wiener Konzerthaus í Vínarborg. Fyrirtækið

...