Inga Sæland, límið í nýrri ríkisstjórn, og hennar eldhúsflokkur með húskarlinn innanborðs og sjálfskipaðan leiðtoga gegn spillingu í samfélaginu og áætlaður formaður fjárlaganefndar, Ragnar Þór Ingólfsson, eru í vandræðum.
Inga og Ragnar hafa í gegnum tíðina sjaldan sparað stóryrðin þegar þau hafa sakað stjórnvöld og stjórnkerfi landsins allt um spillingu og vanvirðingu við meðferð á almannafé. Nú er komið í ljós að þau hefðu bæði frekar átt að hrópa hvort á annað.
Eldhúsflokkurinn hennar Ingu hefur þegið hundruð milljóna úr sjóðum almennings án þess að uppfylla skýrar kröfur sem gerðar eru til stjórnmálaflokka sem þiggja slíkt opinbert fé árum saman. Nú lýsir hún því glaðhlakkalega yfir að þetta flokkist allt undir „tittlingaskít“ eins og hún segir sjálf. Bætir síðan við að henni detti ekki í hug að greiða peninginn til baka, hnýtir síðan í persónu blaðamannsins
...