Söngkonan Stína Ágústsdóttir gaf í fyrra út breiðskífuna Yours Unfaithfully sem tekin var upp í hljóðverinu Sundlauginni í september ári fyrr, 2023, og gefin út af Prophone/Naxos. Plötuna vann Stína m.a
Speglun „Ég spegla sjálfa mig mikið í textunum,“ segir Stína Ágústsdóttir um nýjustu plötu sína.
Speglun „Ég spegla sjálfa mig mikið í textunum,“ segir Stína Ágústsdóttir um nýjustu plötu sína. — Ljósmynd/Anna Maggý

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Söngkonan Stína Ágústsdóttir gaf í fyrra út breiðskífuna Yours Unfaithfully sem tekin var upp í hljóðverinu Sundlauginni í september ári fyrr, 2023, og gefin út af Prophone/Naxos. Plötuna vann Stína m.a. með Mikael Mána gítarleikara og lagahöfundi, Alberti Finnbogasyni framleiðanda og Maïu Davies sem er margverðlaunaður lagahöfundur og framleiðandi. Blaðamaður setti sig í samband við Stínu og grennslaðist fyrir um plötuna sem í tilkynningu er sögð „yfirfull af uppreisnarþrá og einstökum hljóðheimi söngkonunnar“.

Kveðja til samfélagsins

Platan heitir Yours Unfaithfully, hver er sagan á bak við titilinn?

„Ég sá þessa kveðju í lista

...