” Ef fyrirtæki fjárfestir í hlutdeildarskírteinum greiðir félagið fyrst skatt af hagnaðinum jafnvel þótt hann sé ekki innleystur.

Skattkerfið

María Guðjónsdóttir

Lögfræðingur Viðskiptaráðs

Verðbréfasjóðir gegna lykilhlutverki við að tengja saman fjármagn, fólk og fyrirtæki. Með því að sérhæfa sig í vali á fjárfestingum stuðla þeir að skilvirkari miðlun fjármagns, sem gerir fleiri arðbær verkefni að veruleika. Þetta styður við atvinnuuppbyggingu, nýsköpun og hagvöxt.

Á Íslandi byggist skattkerfið á þeirri grunnhugsun að fyrirtæki geti fjárfest sín á milli án þess að fjármagn sé skattlagt fyrr en eigendur þeirra innleysa hagnað. Þetta á að tryggja óhindrað flæði fjármagns á milli fyrirtækja svo lengi sem það er notað til að skapa ný verðmæti.

Þegar fyrirtæki fjárfesta í hlutabréfum er skattlagning hagnaðar í samræmi við

...