Gríðarleg dramatík var í báðum leikjum gærkvöldsins í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í handknattleik. Bæði Króatar og Frakkar skoruðu sigurmörk sín gegn Ungverjum og Egyptum á síðustu sekúndu leikjanna og liðin mætast því í undanúrslitum á morgun. Dagur Sigurðsson getur nú unnið til verðlauna sem þjálfari á stórmóti í þriðja skipti. » 22