Það væri kannski miklu flottara ef ég væri að vinna í fjármálageiranum núna. Mín persónulega skoðun er hins vegar sú að matvælaframleiðsla skipti samfélagið gríðarlega miklu máli. Hún er ein af grunnstoðunum og tryggir okkur matvælaöryggi sem er mikilvægt á tímum stríðs og óróleika. Það geta orðið mikil umbrot á skömmum tíma og þá þurfum við að geta verið sjálfbær með mat,“ segir Hanna Dögg Maronsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri Bústólpa.
Það er auðheyrt á Hönnu Dögg hversu vænt henni þykir um íslenskan landbúnað „Já, heldur betur. Ég hef reynt að leggja mitt af mörkum í gegnum sölu- og markaðsmál Bústólpa; að vera með jákvæða ásýnd á iðnaðinn. Bara það hvaða myndefni við veljum skiptir máli fyrir kynningu á hinum íslenska bónda, hvort sem hann er kona eða karlmaður. Mér finnst svolítið leiðinleg sú ásýnd að sýna bóndadurga í lopapeysu á mynd með ónýtan girðingarstaur þegar
...