Hjördís Birna hlaut nýlega viðurkenningu sem framtíðarleiðtogi á sviði alþjóðlegs gerðarréttar frá einum stærsta rannsóknarmiðli á sviði lögfræði á heimsvísu, Lexology. Hjördís segir tilnefninguna byggða á umsögnum frá skjólstæðingum og sérfræðingum sem starfi innan sama geira.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin?
Gerðardómur Alþjóðaviðskiptaráðsins (ICC) er leiðandi á heimsvísu á sviði alþjóðlegrar gerðarmeðferðar og sá gerðardómur sem alþjóðleg fyrirtæki kjósa helst til að leysa úr sínum viðskiptadeilum. Á hverju ári eru á bilinu 800-900 ný mál skráð hjá dómnum og það eru mál á milli fyrirtækja frá öllum heimshlutum og á öllum sviðum viðskiptalífsins.
Það er auðvitað áskorun að vera stöðugt á tánum, viðhalda forystunni andspænis aukinni samkeppni og mæta
...