Kristín Ómarsdóttir, Rán Flygenring og Guðjón Friðriksson hlutu í gærkvöldi Íslensku bókmenntaverðlaunin 2024 úr hendi Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, er þau voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í 36
Gleðistund Stefán Máni, Guðjón Friðriksson, Rán Flygenring og Guðrún Yrsa Ómarsdóttir, systir Kristínar sem tók við verðlaununum fyrir hennar hönd, glaðbeitt á Bessastöðum í gærkvöldi.
Gleðistund Stefán Máni, Guðjón Friðriksson, Rán Flygenring og Guðrún Yrsa Ómarsdóttir, systir Kristínar sem tók við verðlaununum fyrir hennar hönd, glaðbeitt á Bessastöðum í gærkvöldi. — Morgunblaðið/Karítas

VIÐTAL

Ragnheiður Birgisdóttir

Silja Björk Huldudóttir

Kristín Ómarsdóttir, Rán Flygenring og Guðjón Friðriksson hlutu í gærkvöldi Íslensku bókmenntaverðlaunin 2024 úr hendi Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, er þau voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í 36. sinn. Við sama tækifæri voru Íslensku glæpasagnaverðlaunin – Blóðdropinn 2024, afhent í 19. sinn og þau hlaut Stefán Máni.

Kristín hlaut verðlaunin í flokki skáldverka fyrir skáldsöguna Móðurást: Draumþing sem Mál og menning gefur út; Rán í flokki barna- og ungmennabóka fyrir myndabókina Tjörnin sem Angústúra gefur út og Guðjón í flokki fræðibóka og rita almenns efnis fyrir bókina Börn í Reykjavík sem Mál og menning gefur út. Stefán Máni var verðlaunaður fyrir

...