Rómantísk hrollvekja hreiðrar um sig á Stóra sviði Borgarleikhússins annað kvöld. Um er að ræða sýninguna Árið án sumars eftir leikhópinn Marmarabörn og er lokaþáttur í því sem þau kalla hamfara-þríleik en hópurinn hefur áður sýnt verkin Að flytja…
Viðtal
María Margrét Jóhannsdóttir
mariamargret@mbl.is
Rómantísk hrollvekja hreiðrar um sig á Stóra sviði Borgarleikhússins annað kvöld. Um er að ræða sýninguna Árið án sumars eftir leikhópinn Marmarabörn og er lokaþáttur í því sem þau kalla hamfara-þríleik en hópurinn hefur áður sýnt verkin Að flytja fjöll í þremur atrennum og Eyður sem hlutu mikið lof og voru sýnd víða erlendis.
Saga Kjerúlf Sigurðardóttir og Kristinn Guðmundsson ræddu við blaðamann Morgunblaðins um tilurð verksins en þau eru bæði höfundar og leikarar ásamt þeim Sigurði Arent Jónssyni, Katrínu Gunnarsdóttur og Védísi Kjartansdóttur. Aðrir sem standa að sýningunni eru sviðsmyndahöfundurinn Guðný Hrund Sigurðardóttir, tónskáldið Gunnar Karel Másson og ljósahönnuðurinn
...