Lilja Alfreðsdóttir
Lilja Alfreðsdóttir

Alþjóðamálin hafa ekki verið jafn þýðingarmikil í áraraðir og það reynir á ríkisstjórn Íslands að tryggja hagsmuni landsins. Það eru viðsjárverðir tímar. Enn sér ekki fyrir endann á hrikalegu stríði í Úkraínu. Norðurskautið er komið í hringiðu alþjóðaumræðunnar vegna áhuga Bandaríkjaforseta á að styrkja stöðu sína á Grænlandi. Forsætisráðherrar Norðurlandanna funduðu vegna stöðunnar og danski forsætisráðherrann er farinn í ferðalag um Evrópu til að tryggja stuðning við þeirra málstað. Í mínum huga snýst málið um vilja Grænlendinga og sjálfstæði þeirra til framtíðar, sem og virðingu fyrir alþjóðalögum. Landfræðileg staða Íslands og Grænlands er mikilvæg sem fyrr og gott að rifja upp margtilvitnuð orð fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Winstons Churchills: „Hver sá sem hefur yfirráð yfir Íslandi heldur á byssu miðaðri á England, Ameríku og Kanada,‘‘ sagði hann um hernaðarlegt mikilvægi Íslands í seinni heimsstyrjöldinni. Æ

...

Höfundur: Lilja Alfreðsdóttir