Hafsteinn Jónsson fæddist 14. október 1956. Hann lést 28. desember 2024.
Útför Hafsteins var gerð frá Lindakirkju 14. janúar 2025.
Það var ekki margt sem ég vissi um Hafstein er við hittumst fyrst í lok árs 2009, annað en hann keyrði Heiðu og vinkonur hennar stundum í bæinn þegar þær gerðu sér glaðan dag. Í fyrstu þótti mér dömurnar heldur aðgangsharðar gagnvart honum. Eftir því sem árin liðu lærði ég að þetta var stór hluti af persónu Hafsteins, enda spurði hann oft einlægur af hverju við hjónin hringdum ekki í hann er við býsnuðumst yfir dýrum leigubílaferðum eftir einhvern gleðskapinn. Ávallt að hugsa um aðra. Ávallt að hjálpa. Ávallt til staðar.
Hófsamt mál er vitsins sál, það vissi Hafsteinn, og ég held að lengsta símtal
...