Loðna Fæða fyrir hnúfubakinn.
Loðna Fæða fyrir hnúfubakinn.

Ég hef stundað sjómennsku frá 1958 og fylgst vel með lífríkinu á svæðinu frá Djúpavogi að Hrollaugseyjum. Fyrstu árin sást varla hnúfubakur, það er ekki fyrr en 1980-90 sem honum fer ört fjölgandi. Þá fór ég að fylgjast með honum og sá að hann lá í trönusíli og loðnu sem hann virðist fylgja.

Ég stunda enn þá strandveiðar og sé mjög mikið af hnúfubak á miðunum og líður vart það sumar að einhver smábátur sigli ekki á hnúfubak, sem veldur talsverðu tjóni.

Hnúfubakurinn virðist vera um allan sjó, einnig inni á fjörðum og flóum.

Hefur það verið rannsakað hvað hnúfubakur hefur mikil áhrif á loðnustofninn og sama er með trönusílið sem er horfið af þessum slóðum? Það er einnig orðið lítið af sandsíli.

Ég tel að hnúfubakurinn eigi mikinn þátt

...