Katla Sólnes var meðal þeirra 10 umsækjenda sem valdir voru til þátttöku í vinnusmiðju fyrir upprennandi handritshöfunda á Sundance-kvikmyndahátíðinni 2025. Segir á vef Deadline að mikill fjöldi hafi sótt um en alls bárust 3.380 umsóknir
Katla Sólnes var meðal þeirra 10 umsækjenda sem valdir voru til þátttöku í vinnusmiðju fyrir upprennandi handritshöfunda á Sundance-kvikmyndahátíðinni 2025. Segir á vef Deadline að mikill fjöldi hafi sótt um en alls bárust 3.380 umsóknir. Verkefni Kötlu var kvikmyndin Að temja eldinn en hún gerist á Íslandi snemma á 8. áratugnum og er í fullri lengd. Segir þar frá eiginkonu jarðfræðiprófessors sem finnst hjónabandi sínu ógnað þegar bandarískur starfsnemi mætir á svæðið. Verkefni Kötlu hafði áður fengið handritsstyrk frá Kvikmyndamiðstöð Íslands. Vinnusmiðjan fór fram á dögunum og er henni ætlað að veita upprennandi handritshöfundum tækifæri til að þróa fyrstu og aðra kvikmynd sína.